Allt í lagi, ég er ekkert svo dugleg við að blogga. En ég
reyni nú samt
Ef einhvern vantar vinnu þá vantar
starfskraft í Dogma, endilega sækið um!
En það hefur ýmislegt á daga mína
drifið upp á síðkastið, búin að fara tvisvar í bíó (annað eins
hefur ekki gerst í áraraðir) á Deuce Bigalow og
Súkkulaðiverksmiðjuna, báðar mjög fyndnar og skemmtilegar.
Súkkulðiverksmiðjan er alveg ótrúlega flott mynd, rosalegar
sviðsmyndir alltaf og fullt af sniðugum hlutum, Tim Burton alveg að
fara á kostum.
Það er búið að vera brjálað að
gera í vinnunni. Nei, reyndar ekki en það er í góðu lagi, hef það
gott með dagblöðin mín og bækurnar. Ef ég væri í skóla þá væri ég
alltaf að læra í vinnunni. Ætla að taka með mér spænskubækurnar
mínar á næstunni, rifja þetta aðeins betur upp.
Minna en þrír mánuðir þangað til
ég og Sigga Eva verðum í Suður Ameríku! Nánar tiltekið að koma í
land eftir Galapagos-eyja ferðina okkar. Ætli þessi bloggsíða verði
ekki okkar helsti miðill þarna úti þar sem hún Sigríður blessunin
hefur ekki enn komið upp einni svona bloggsíðu. Við bíðum öll
spennt. Mjög svo.
En hún hefur afsökun núna, með sitt ofurþrútna
andlit, greyið... Eða hvað, núna er fullkominn tími til að byrja að
blogga, jahá!
Hvað um það. Mig er búið að dreyma
svakalega skrýtna (en skemmtilega) drauma síðastliðna daga, ég
rugla fólki saman og alles. T.d. dreymir mig að Auður sé Auður í
persónu en samt Lilja í útliti (reyndar ekki akkúrat þær en þið
fattið). Síðan dreymdi mig um daginn að ég væri með lausan hárlokk,
skipti mig samt engu máli í draumnum.
Ég er búin að fara einu sinni í
bólusetningu fyrir ferðina, það var ekkert vont. Svaka hetja, ég
veit. En þetta var svona ,,just a little prick" eins og
Dr. Evil sagði eitt sinn. Þarf að fara aftur 6. október og svo bara
þegar ég kem heim úr ferðinni held ég. Spyr betur um þetta næst,
kannski betra. Það kom einmitt í ljós að ég þarf ekki að fara í
allar þær sprautur sem ég hélt, vúhú! En Sigga segist samt þurfa að
fara í þær, kannski ég spyrji um það líka...
Hef verið ofboðslega dugleg á
djamminu nýlega. Laugardagurinn 3. september er að vísu frekar
þokukenndur, ahemm, en ég skemmti mér samt sem áður konunglega og
tók slatta af myndum. Þær fara fæstar á myndasíðuna mína, af ýmsum
ástæðum... Síðasta laugardag var svo lokadjammið hennar Ingu. Eftir
dekur í Abaco (potturinn, nudd og jarðarber með súkkulaði, mmm...)
fórum ég, Lilja, Hildur, Sigga, Inga og Guðrún fórum út að borða á
Götugrillinu. Góður matur þar og eftir það fórum við heim og ég
gerði svaka góða bollu eins og úti á Spáni (manstu Hildí?
) og
klukkan tíu hélt stóðið ásamt Auði, Helgu og Gyðu niður á Dáta þar
sem biðu okkar tveir kútar og skemmtilegt fólk. Mjög skemmtilegt
kvöld, að vísu varð mín ekkert drukkin þrátt fyrir að hafa reynt,
en ég tók hins vegar fullt af myndum og þær fara nú flestar á
netið. En það fær enginn að sjá pottamyndirnar, rólegar
stelpur
Í gær og á síðasta miðvikudag var
stelpukvöld hjá okkur Lilju og Auði, Inga var svo með í gær.
Elduðum Enchiladas og horfðum á America's next top model (ömurlega
langt nafn á þætti!) og lágum síðan á meltunni í smátíma. Úff, hvað
ég var södd...
Laugardaginn 3. september var ég
að vinna á Bellunni með Auði o.fl. og hver haldiði að hafi komið út
að borða? Jú, enginn annar en leikhússtjórinn sjálfur með bróður
sínum! Ohh, hann er svo myndarlegur... Enda var pínu keppni í gangi
hjá mér og Auði um að þjóna honum, því miður sat hann í Auðar sal
En það var allt í lagi vegna þess að ég skemmti mér barasta vel við
að þjóna Sóleyju, Kalla, Pétri og Tobba (allt sem hann segir er
lygi, hann var á lyfjum!) sem komu öll út að borða og voru
miklu skemmtilegri en leikhússtjórinn... Ekkert bitur...
Og gleðifréttir... O.C. er byrjað
aftur! Þvílík gleði og ánægja, ég ligg framvegis við sjónvarpið á
mánudögum. Sem minnir mig á það, af hverju er svona góð dagskrá á
mánudögum? Furðulegt.
Hver verður síðan númer 10.000 að
skoða síðuna mína, ha??
Er að setja fleiri myndir inn á
myndasíðuna, fylgist með
Jæja, nenni þessu ekki lengur, man
ekki meira sem ég ætlaði að skrifa um.
Hasta pronto... o
luego