.:betra er autt rúm en illa skipað:.

.:betra er autt rúm en illa skipað:.

22.02.2005 23:42:46 / María

.:Heima er best

VIÐVÖRUN! ÞETTA ER MJÖG LÖNG FÆRSLA.

Já, heima er svo sannarlega best. Þykir mér. Það er gaman að skreppa aðeins suður af og til en alltaf þægilegt að koma heim aftur. Hreina loftið í Reykjavíkinni heillar enn ekki nógu mikið til þess að ég flytji þangað í bráð. Samt er úrvalið af karlpeningi þarna fyrir sunnan örlítið betra en hér fyrir norðan, að mínu mati;)

Ég tók nokkrar myndir og er búin að setja eitthvað af þeim inn á myndasíðuna mína og það er tengill á þær hérna á síðunni, þið ratið... Setti líka inn myndir af síðasta djamminu hennar Lilju. Ég, Lilja, Aldís og Inga skelltum okkur á Dátann meðal ýmissa misskemmtilegra einstaklinga sem þar saman safnast. En það var gaman hjá okkur! Ég er líka búin að setja inn myndir frá partýi sem Elín vinnufélagi og Sigga, kærastan hennar, héldu á laugardaginn síðasta. Þaðan fóru flestir í Sjallann á Pál Óskar og var það einkar skemmtilegt, verð ég að játa. Í því partýi var hann Jón Friðrik í essinu sínu. Held það hafi verið hringt í hann með tíu mínútna millibili frá klukkan tíu og spurt hann af hverju í helv... hann væri ekki búinn að drattast inn á Akureyri og í partýið. Hann svaraði alltaf að hann væri alveg að koma, rétt ókominn, á Vaðlaheiðinni eða eitthvað álíka gáfulegt. Tek það fram að ég hringdi aldrei í hann, enda mjög svo þolinmóð manneskja. Ég hef held ég aldrei séð hann Frikka Wæs svona drukkinn, ekki svo ég muni a.m.k. Hann blaðraði alveg út í eitt og voru ekki allir alls kostar sáttir við það sem hann lét út úr sér þetta kveldið, t.d. Elsa, híhíhí;) En það var gaman á þessu svokallaða balli hjá Páli og held að allflestir hafi barasta skemmt sér vel, enda nóg af skemmtilegu fólki þarna á ferð...

Reykjavíkurferðin: Á föstudaginn gerðum við lítið. Sóttum Siggu og komum svo í íbúðina (sem var æðisleg!) klukkan ég-man-ekki-hvað og settum töskurnar og allt draslið inn og gerðum heimilislegt. Svo vorum við allar orðnar svangar þannig að ég plataði þær til þess að panta mat á American Style. Þær sáu nú ekki eftir því og við borðuðum þennan ótrúlega góða mat yfir íslenska Idolinu. Við fórum ekkert út þetta kvöld, þó svo að ég hafi verið búin að taka mig alveg til og allt, og ég var frekar svekkt og reyndar svolítið pirruð líka. Þannig að ég ákvað að fara út að labba, bara eitthvert. Og það róaði aðeins taugarnar, sem betur fer...

Á laugardeginum vaknaði ég fyrst allra og fór fram að horfa á barnaefnið í sjónvarpinu (Móglí, gegt gaman) og borða Cheerios. Síðan vaknaði Sigga og eftir ákveðinn tíma vaknaði svefnpurkan Inga líka. Skruppum í Kringluna og H&M, minnir að það hafi ekki verið meira, náðum nú að kaupa smávegis þann daginn. Hildur sótti okkur Siggu síðan í Kringluna (Inga fór á undan okkur í íbúðina til að horfa á Liverpool leik, ég neita að tala um úrslitin) og varð eftir hjá okkur í íbúðinni. Við fórum allar út að borða á Ruby Tuesday (jebb, plataði þær þangað líka, múhaha) og náðum að mynda skemmtileg tengsl við einn þjóninn þar;) Maturinn var uuuunaður og rann ljúflega niður. Ég fékk mér að sjálfsögðu rif, mmmmmm... Fórum heim í íbúð og spiluðum Actionary/Pictionary, sem var snilld! Hildur sýndi t.d. snilldartakta með því að leika vin í eyðimörkinni. Hún misskildi aðeins, hélt það væri sko vinur í eyðimörk! Og það var mjög hlegið að þessu, híhíhíhí;) Vin í eyðimörk, Grænland á grænlensku, jú nó vott æ mín;) Auður kom síðan til okkar, fersk beint frá London og stuttu seinna vorum við á leið í bæinn. Fórum á Hverfisbarinn og hittum fullt af fólki og rugluðum endalaust í þeim (ég þóttist t.d. vera bresk, mjög gaman og ótrúlegt hvað það voru margir sem féllu fyrir því!). Þar var voða gaman og við gersamlega börðum karlana af okkur (þ.e.a.s. þessa ógeðslegu;)). Eftir gott djamm fórum við heim í íbúðina og sofnuðum ljúfum svefni eftir þrælskemmtilegan dag og enn skemmtilegra kvöld. Að vísu var eitt sem setti miður skemmtielgan svip á kvöldið en það verður ekkert útlistað hér.

Sunnudagurinn fór í eintóma leti og ekkert annað en leti... Og það var afskaplega gott. Náði að fara í Smáralind með Auði og þangað sótti Addi bróðir hennar okkur því Inga var að kynna Enjo-vörur einhvers staðar. Við Auður borðuðum á Pizza Hut (svo gott..) og seinna um kvöldið keyptum við okkur rúmlega lítra af ís og karamellusósu í 10-11 en gátum sem betur fer ekki klárað hann...

Ég tók til í íbúðinni á mánudeginum og var að því allan daginn! Lagaði til, bjó um, gekk frá öllu á sinn stað, tók utan af sængunum og koddunum, safnaði flöskunum og dósunum í poka, henti öllu sem mátti henda og safnaði ruslapokunum saman (sem og pizzukössum) og vaskaði líka allt upp (sem var sko alls ekki lítið!). Varð nett pirruð (urrr) því mest af draslinu var eftir hana Ingu Kristínu (já Inga mín, þú ert subba;)) en ég sagði henni frá því og hún ryksugaði, fór niður með rúmfötin og út með ruslið þannig að ég var ágætlega sátt. Fattaði ekki að það væri Valentínurasdagur fyrr en ég talaði við Halla vin minn í sambandi við að koma út að borða með mér, Ingu og Auði. Hann minntist á að það væri kannski erfitt að fá borð þar sem það væri Valentínusardagur, sem var rétt. Þannig að ég gat lítið annað gert en að plata þau (aftur) með mér á Ruby Tuesday!:D Helgin fullkomnaðist þarna hjá mér matarlega séð. Gat ekki annað en fengið mér rif ...aftur. Sé ekki eftir því vegna þess að þau eru alltaf góð. Og ostastangirnar... Ætla að hætta að tala um Ruby áður en ég fer að slefa á lyklaborðið. Þegar í íbúðina var komið fórum við Inga og Auður í Pictionary/Actionary með Hildi. Grímur sat hjá eins og þvara og þóttist vera dómari leiksins. Held ég. Hann svindlaði með Hildi, pottþétt..;) Eftir mikla kveðjustund héldum við Auður í háttinn en Inga horfði á sjónvarpið eitthvað fram eftir nóttu.

Þriðjudagsmorguninn fór í sendiferðir en við vorum komnar út úr bænum rétt eftir hádegi með Önnu Kristínu (Inguvinkona) í för. Ferðin gekk vel, ég keyrði frá Staðarskála og hélt mér vakandi með því að hlusta á Rokkland 2003. Reyndi nokkrum sinnum að tala við stelpurnar en þær voru víst sofandi næstum alla leiðina. Góður félagsskapur í þeim. Sofnaði frekar snemma um kvöldið og ætlaði í Body Pump klukkan hálf níu á miðvikudagsmorgninum en svaf af mér vekjaraklukkuna þar til næstum hálf ellefu! Þetta var greinilega langþráður svefn. Fimm mínútum eftir að ég vaknaði hringdi svo Magga til að spyrja hvort ég væri ekki að koma. Jújú, sagði ég og fattaði allt í einu að við vorum að fara í Strong-áhugasviðskönnunina kortéri seinna. Sjitt og fokk og fokk og sjitt var eiginlega það eina sem ég hugsaði og mér tókst að skola hárið, klæða mig og setja á mig maskara, allt bara á fimm mínútum! Stórt afrek hjá Maríu litlu. Brunaði til Möggu, brunaði í MA, tókum könnunina, ég var síðust út eins og alltaf, og keyrði í rólegheitunum heim aftur. Skellti mér í ræktina til að reyna að hrista Reykjavíkur-óhollustuna úr líkamanum.

Nenni ómögulega að skrifa meira í bili, orðin pirruð á að sitja svona lengi og fæ eflaust krampa í fingurna bráðum ef ég held áfram að pikka svona.

Hasta luego:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 00:21:45 / María

.:Höfuðborgin heimsótt

Á morgun leggjum við Inga Kristín af stað til Reykjavíkur. Sú ferð verður vonandi þægileg og greiðfær. Með í för verður Sólveig, ung Akureyrarmær sem hefði getað tekið þátt í fegurðarsamkeppni en gjörði eigi svo (held ég). En allavega... Við leggjum sumsé í hann um leið og Inga fær eitthvert pappírssnifsi í hendurnar frá lækninum sínum og munum bruna til höfuðborgarinnar eins og við værum Michael Schumacher sjálfur í keppnisskapi, guð hjálpi oss. Fyrir sunnan er ætlunin að hitta hana Hildi elskuna, sem við höfum ekki séð lengi (a.m.k. ekki ég og ég hlakka svo til) og Auði, sem er búsett í London um þessar mundir en er í vinnuferð á klakanum í þrjár vikur. Jibbí fyrir okkur:D Við fengum þessa fínu íbúð á Sóleyjargötu og hyggjumst hafa það afskaplega notalegt þessa daga sem við dveljum í borginni, endilega kíkið í heimsókn;) Svo ætti maður kannski að kíkja á hana Elísu fyrst maður er nú að skreppa þetta. Ég ætla að gefa mér það bessaleyfi að segja: Elísa mín, þér er hér með boðið í heimsókn til okkar, vertu guðvelkomin:D Það verður eflaust endalaust djamm í gangi yfir helgina, þeir sem búa fyrir sunnan endilega lát oss vita ef það verður eitthvað sérstakt í gangi:)

Sem minnir mig á það... Ég er barasta búin að steingleyma að Dátinn sé til á fimmtudagskvöldum. Þegar Lilja og Auður eru ekki hér til að draga mann út þá fer mín einfaldlega á (frekar) guðlegum tíma í háttinn, sem er gott.

Ég þarf aðeins að tjá mig um þessi útvarpsmál. Ég var (/er?) mjög svo hrifin af útvarpsstöðvunum X-inu, Skonrokki og Radíó Reykjavík (hlustaði auðvitað bara þær síðastnefndufyrir sunnan, annað ómögulegt). Af hverju í ósköpunum þurfti endilega að taka þær úr umferð?! (Vinsamlegast ekki svara þessu eins og ég viti ekki hvers vegna, því það veit ég, en ég er einungis að velta þessu fyrir mér) Það finnst mér ekki vera sanngjarnt gagnvart þeim sem vilja hlusta á rokk og þvíumlíkt sem var spilað og í hávegum haft á þessum stöðvum. Mér finnst persónulega mikil synd að allar þessar stöðvar hafi þurft að hætta starfsemi því þær vou mér mjög að skapi. Reyndar hef ég heyrt því fleygt að Radíó Reykjavík sé bara niðri tímabundið niðri og muni komast aftur í gagnið en ég veit svo sem ekki hvaða vit er í þeim orðrómi. Eftir að stöðvarnar hættu hef ég næstum alfarið hlustað á Rás 2 vegna þess að það er eiginlega eina stöðin sem vert er að hlusta á. Þar er a.m.k. passað upp á að tónlistin sé fjölbreytt, annað en á sumum ónefndum útvarpsstöðvum. Já, ég geri mér grein fyrir því að X-ið var eina stöðin af þessum þremur sem náðist hér en þið fattið þetta... Ég er hætt að hugsa sem svo að kannski sé þetta bara hálfgert plat, stöðvarnar koma einhvern tíman aftur og ég þarf bara að sthuga af og til hvort það standist ekki. Neibb, þessu er lokið hjá þeim, því miður. R.I.P. takk fyrir og góðan daginn. Núna er ein rokkstöð til á Íslandi (svo best ég veit). Það er nýja stöðin X-FM, sem er víst eitthvert afsprengi Kiss-FM. Ekkert hef ég heyrt af henni eða viðtökum við henni en mun svo sannarlega stilla á þess rás um leið og ég kem í borgina. Inga, þú verður bara að þola það;)

En nóg af rausi um þetta, gott að koma þessu af sér, ætla að klára að pakka og fara síðan í háttinn. Ef ég fer í ræktina á morgun verður það í áttunda sinn í þessari viku, vúhú! Asskoti er ég dugleg;)

Hafið það gott um helgina...


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2005 18:14:59 / María

.:Aha, einmitt...

Mikið svakalegt rok hefur verið síðustu daga! Svo er snjórinn allur farinn! Ég er ekki alls kostar sátt við þetta fyrirkomulag. Það er eins og heimurinn sé allur öfugsnúinn. Fullt af snjó í Japan, Ítalíu og á fleiri stöðum þar sem snjóar yfirleitt ekki mikið, flugferðum aflýst og ég veit ekki hvað og hvað og svo hérna heima á Íslandinu kæra. Nei, hér er bara allt með ró og spekt (fyrir utan rokhviðurnar), enginn snjór,ekkert frost, ekki neitt. Ég vil fá minn snjó og komast í fjallið!

En hvað um það... Ég var að vinna tvær síðustu helgar og hafði bara ágætlega gaman af. A.m.k. helgina 28. - 30. janúar. Þá voru nokkrir háskólar í bænum og hluti fólksins kom á Bautann að borða, þeirra á meðal leyndust nokkrir mjög myndarlegir karlmenn sem vorumeira að segja skemmtilegir líka en síðan voru nokkrir einstaklingar hundleiðinlegir og með skæting. Maður lætur það þó ekki á sig fá, iss... Seldi t.d. mikið magn af áfengi þá helgina, fólk að fá sér afréttara og hressa sig við og svoleiðis, jájá.

Síðan fór ég á Sálarball í Sjallanum á laugardeginum og skemmti mér konunglega. Að vísu var troðfullt og varla hægt að dansa en við Magga og Fjóla náðum samt að skemmta okkur mjög vel.Fyrir utan það að Magga fótbrotnaði aftur og það á hinni löppinni, híhíhí... Ljótt að hlæja en þetta er kaldhæðnislega fyndið. Sem sagt,kvöldið skemmtilegt, fékk far með Ingu heim og allir lukkulegir.

Síðasta laugardag var Skímó að spila í Sjallanum og ákváðum við Helga Margrét úr vinnunni að athuga hvort við fengjum frítt inn ef við mættum snemma (átti að vera frítt inn fyrir fyrstu 100 manns). Svo varð raunin og skemmtum við okkur mjög vel allt kveldið. Inga var á barnum og við spjölluðum við hana af og til, svona þegar Helga var ekki að sníkja drykki af varnarlausum karlmönnum;) Ég hitti líka Ingu Dagnýju og Hall og við skemmtum okkur vel saman. Hallur ætlaði svo að halda eftirpartý en það varð víst ekkert úr því vegna óviðráðanlegra aðstæðna... Ég var edrú og keyrandi og eftir ballið keyrðum við Helga aðeins um með Atla Ragnars (mjög svo hress), einhverjum Sindra úr Þór og Svía sem er kallaður Putti (á að vera kaldhæðnislegt gælunafn, hann er svaka stór!) og það var nú bara gaman. Gott kvöld svona í heidlina;)

Svo er kannski vert að minnast aðeins á það að nokkrar manneskjur hafa haft eilitlar áhyggjur af ástarlífi mínu að undanförnu, alltaf að spyrja hvort ég sé ekki að hössla eitthvað. Iss, skil ekki þessar áhyggjur, ég hef það gott og ef mér leiðist of mikið þá kaupi ég mér bara hund:D

En nóg af öllu þessu. Ég og Inga Kristín höfum hér með ákveðið að skella okkur suður um næstu helgi (11. - 14. febrúar) og erum búnar að leigja íbúð nálægt miðbænum og alles. Erum að vinna í því að fá með okkur leynigest, vonum að allt gangi að óskum þar á bæ. Verður ekki fjör í borginni þessa daga?:D


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 19:01:56 / María

.:Kominn tími á 10 daga bloggið

Já, svona er það þegar maður nennir ekki að setjast fyrir framan tölvuna og pikka inn hrakfallasögur af sér á hverjum degi, þá getur liðið alllangur tími á blogg. Jahérna já.

Nú, af mér er nokkuð að frétta og mun ég rekja það helsta hér á þessari blessuðu síðu. Síðustu dagana í janúar var ég mamma heimilisins þar sem allir fjölskyldumeðlimir (nema ég og Júlíus bróðir minn) voru veikir. Nú þekki ég hluta af því sem hún móðir mín góð þarf að þola daginn út og inn og get ég ekki annað en verið ofboðslega stolt af henni. Ég þurfti að skutlast hingað og þangað með fjölskyldumeðlimi, í skólann, búðir, á æfingar, vinnuna og slíkt. Síðan þurfti ég að kaupa inn heilan helling ofan í okkar 6 manna fjölskyldu, sem er ekkert voðalega ódýrt, og þurfti alltaf að kaupa eitthvað á hverjum degi (mjólkin hérna klárast á ótrúlega stuttum tíma). Bölvað vesen allan daginn. Samt alveg ágætt að hugsa svona um þau, umhyggjusemin kom upp í mér og ég lét gott af mér leiða;) Eitt það góða við þetta var að ég fékk að hafa bílinn, vúhú! Við Júlíus æfðum okkur síðan í eldamennskunni og elduðum lasagna eitt kvöldið og það bragðaðist betur en ég átti von á, mjög gott barasta:D Já, ég er upprennandi kokkur...

Svo var ég ótrúlega dugleg og fór í ræktina á hverjum degi í síðustu viku. Núna er kortið mitt hins vegar útrunnið þannig að ég er ekkert dugleg og safna þess í stað spiki eins og nýfæddur hvalur. Eða eitthvað.

Við Hildigunnur Káradóttir Sölmundarsonar (nei, úps, það var einhver annar...) byrjum í spænskuskóla þann 26. júní 2005 og munum stunda það nám af krafti í 6 vikur. Ætlum að vísu að fara út 23. júní og koma heim 11. ágúst til að eiga nokkra daga bara svona til að slæpast og hafa gaman. Villast og svoleiðis sniðugt kannski.... Síðan held ég afmælispartý 12. ágúst ef allt fer að óskum ...kannski;) Eins gott að Spanjólarnir búi sig undir komu okkar ,,vækíng vúmen´´ frá Íslandi, með endalaust djammþol og í lopapeysum. Nema við sleppum lopapeysunum.

Um daginn var ég að vinna og ætlaði að fá far heim hjá Birgittu. Ég var komin í bílinn til hennar og hún var að keyra af stað þegar ég tek allt í einu eftir því að bílinn okkar er á bílastæðinu. Þá hafði ég sem sagt gleymt því að ég væri á bíl, ahem... Svoleiðis að ég keyrði sjálf heim. Annað en einu sinni þegar ég labbaði heim úr vinnunni, hugsandi (pirruð) alla leiðina af hverju í ósköpunum enginn byði mér far, og fattaði ekki fyrr en morguninn eftir að ég hefði farið á bíl í vinnuna. Já, ég er klár...

Látum þetta gott heita í bili, er farin að semja hrakfallaævisögu mína...


» 4 hafa sagt sína skoðun