.:betra er autt rúm en illa skipað:.

.:betra er autt rúm en illa skipað:.

21.06.2006 19:18:54 / María

.:Fréttayfirlit...

Þá er komið að bloggi hjá minni, hvort sem lesendur (ef þeir eru einhverjir eftir) trúa því eður ei. Þar sem ég hef lítinn tíma núna til þess að rita eitthvað af verulegu viti (já, það gerist líka svo oft...) þannig að ég ætla að stikla á stóru og punkta aðeins niður helstu atriði sem hafa verið merkileg í lífi mínu síðustu vikur.
  • Ég fékk vinnu á Stóru-Tjörnum og er að þjóna í salnum þar, hið fínasta starf en reyndar ekkert voðalega mikið hægt að gera utan vinnutíma.
  • Karlinn minn fékk vinnu í Löggunni á Húsavík og er víst svipað um að vera hjá honum utan vinnutíma eins og hjá mér. Skil ekkert í honum að dandalast til Húsavíkur í allt sumar...;)
  • Ég hef líka verið að vinna í Lostæti (systir mömmu á það) og þegar ég var að vinna þar heyrði ég lag í útvarpinu sem hljómaði svona: Halló, halló, halló... Kannast einhver við þetta?!? Jú, þetta minnir mann bara á eitt. Auja á Salou! Hahahaha!:lol:
  • Júlíus ,,litli-hærri'' bróðir útskrifaðist úr MA þann 17. og við fórum öll strollan í veislu upp í höll, það var agalega gaman, rifjaðist upp fyrir mér hversu ótrúlega gaman þetta var! Eygló og Sigrún komu líka og djömmuðu, hitti þær smá og knúsaði þær:) Ég og Kalli gerðum einmitt tilraun til þess að djamma í bænum en gáfumst upp um leið og við komum niður í bæ. Þar voru biðraðirnar barasta allt of langar og við ekki nógu drukkin. Samt skemmtilegt kvöld.
  • Fór vestur til Bolungarvíkur í fermingu hjá bróður Kalla, þar var ofsalega góður matur og gúmmelaði sem ég hámaði í mig af prúðmennsku;)
  • O.fl. o.fl..... sem ég skrifa seinna..
Nú þarf ég að drífa mig í sturtu því ég er að fara út að borða með nokkrum gellum;)
Ég sakna ykkar stelpnanna alveg svakalega (17. júní kveikti þessar langanir svona svakalega til ykkar á nýjan leik;)), langar svo að taka svona Salou-stelpudjamm! Eygló, Guðrún, Hildur, Inga og Sigga (stafrófsröð, engum mismunað hér;)) Ég hlakka svo til að sjá ykkur næst, hvenær sem það verður! Ég sendi ykkur fallegar hugsanir og fullt af kossum ásamt slatta af þrýsta-andliti-að-barmi;) Héhéhé...
Hasta luego mis amigos! María
Inga pinga.. skrifaði
Dugleg stelpa að láta loks í sér heyra... :o) Verð nú svo að fara að hitta aðeins á þig á msn stelpa.. þetta gegur ekki.. allavana sakna þín snúlla og bara 76 dagar í að minns mæti á klakann :o) p.s. h er á undan i í stafróinu ;) hehe
Hildur skrifaði
Hæ sæta þín er sko sárt sakanað líka héðan úr borg óttans.....og veistu karlmenn eru til einskins.......já það er hreinlega fílingurinn héðan........en vinirnir eru alltaf til staðar og svíkja mann ekki.......sakna ykkar alveg fullt hlakka til að hitta ykkur í haust þegar Inga okkar kemur heim...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.