.:betra er autt rúm en illa skipað:.

.:betra er autt rúm en illa skipað:.

04.12.2005 16:47:46 / María

.:Jólin, jólin, jólin koma brátt...

Í dag eru litlu jól hjá mér. Ég setti upp hvolpaaugun fyrir nokkru síðan og fékk fjölskylduna mína til að halda lítil þykjustu jól fyrir mig í dag svona af því að ég er að far. Ég fæ meira að segja rjúpu í matinn!:D

Ég er búin að setja inn fullt af myndum og tengla á þær hérna á síðunni, t.d. af Sálarballinu 19. nóvember þar sem Stebbi Hilmars tók myndir af okkur, újeee;) Svo á ég eftir að setja inn fleiri myndir, svona alls konar. Endilega kíkið á myndirnar frá Sálarballinu, þar voru sumir aaaðeins fyllri en sumir héldu;) Sumir eru t.d. ég og Auður...

Á fimmtudaginn síðasta leið yfir konu í búðinni minni! Hún kom bara allt í einu inn og lagðist hálfpartinn á afgreiðsluborðið. Ég hélt að hún væri bara að hvíla sig og bauð góðan dag. Þá segir hún frekar móð: Það er að líða yfir mig! Og mér brá svo að ég sagði: HA?! Og flýtti mér hinum megin við borðið og þá lagðist hún á gólfið. Ég reyndi að hafa hana á hliðinni svo að hún væri nú ekki með andlitið í gólfinu, gaf henni vatn og þá kom sonur hennar Mössu frænku (sem á skóbúðina við hliðina á mér) og spurði hvort hann ætti að ná í hjálp. Ég játti því og svo kom Massa og við hjálpuðumst að við að hugsa um greyið konuna. Ég hringdi á sjúkrabíl, Massa hélt henni sitjandi og við reyndum að spjalla við hana og gáfum henni krap (því það er í rauninni bara sykur). Svo var líka ein stelpa þarna sem er í löggunni, heitir Sigrún, og hún hjálpaði líka mikið. Konan rankaði við sér nokkrum sinnum, galopnaði alltaf augun og ætlaði að rjúka á fætur. Svo datt hún út af aftur. Í eitt skiptið sem hún rankaði við sér náði hún að egja að mamma sín væri í Nettó og væri ekki fær að hugsa um sjálfa sig. Hún fannst eftir stutta stund, var með höndina í fatla greyið konan. Eftir nokkrar mínútur (sem liðu samt eins og hálftími!) komu síðan sjúkraliðarnir og tóku mæðgurnar. Ég vona bara að þær hafi það báðar gott núna, þetta var pínu ógnvekjandi þarna á tímabili.

Á föstudaginn ætluðum ég og Lilja í Sjallann á Pál Óskar. Við vorum heima hjá henni og höfðum það gott þegar allt í einu sér Lilja mig fimmfalda, leggst út af og ermjög óglatt. Við töluðum samt saman í einhvern tíma, alveg þangað til Auður kom, og ég strauk meira að segja á henni magann til að vega góð við hana. Já, ég er svo hugulsöm, ég veit... Nú, Auður kom og við kíktum í Sjallann þar sem var alveg ágæt setmning en við ákváðum að fara þegar Páll Óskar var ekki búinn að spila óskalagið okkar með Mikjáli Jakobssyni (michael Jackson fyrir þá sem eru fattlausir), við biðum eftir því í hálftíma eða svo. Þá nenntum við ekki að vera þarna lengur, ég kyssti Karlinn bless og við Auður sauður kíktum á Kaffi Akureyri. Þar var ágæt stemning og þó nokkuð margir sem ég þekkti. En við entumst nú ekki lengi og hypjuðum okkur heim að sofa.

Svoleiðis var nú það... Ég á eiginlega að vera að taka til núna, herbergið mitt er ekkert voðalega fallegt ásýndar núna...

Hasta luego, María;)

Inga pinga... skrifaði
Hæ sæta.. Vá hvað er stutt í að þið farið!! Þetta verður geggjuð ferð :o) Kíktu á bloggið okkar og skilaðu til siggu að kíkja líka, var að skrifa smá :o) allavana.. koss og knús rasmus
Sunna skrifaði
Ógeðslega fyndin hrakfararsagan af aumingjans konugreyinu.
Súsanna skrifaði
Mmmm... rjúpur... hlakka ekki smá til að koma heim og borða jólamatinn um jólinn... mér finnt það mjög gott hjá þér að fá svona litlujól... ég mundi gera það líka ef ég hefði verið í þínum sporum...
auður..... skrifaði
hahahahaha..... bara snilldar myndir ;) djö erum við líka alltaf sætar ;) thíhí! en oohh hva ég er eftir að sakna þín þessa 3 mánuði... hvað á ég t.d. að gera í frítímanum mínum um jólin, tja... ég verð víst bara að láta mér leiðast :o/ hlakka bara til að fá þig heim aftur í mars :)
Hanna sín skrifaði
Hi saeta mín.. Vildi bara segja hae svona rétt ádur en tid farid... Bara 5 dagar í heimsreisu ha? Skemmtid ykkur vel :) Kiss kiss og knús Hanna svíi
Hanna sín skrifaði
ò my god, gleymdi ad minnast á tad vid tig... Tú rokkar :) okei bleeeeesss
auður... skrifaði
ójój hvað ég er hræðileg á myndinni sem stebbi tók... jakkbjakk!!! þessi fer sko klárlega á djö-er-þetta-ógeðsleg-mynd-a listann ;)
Chapman skrifaði
lingerie cheremis
cuban_sandwich skrifaði
latin country_of_origin
dar110 skrifaði
asian dda1106
old_world_monkey skrifaði
oxycontin septra
gladfulness skrifaði
nudists harebell
genus_actinomeris skrifaði
nylon vinegar_tree
greenish_yellow skrifaði
babes Dune
aquilege skrifaði
facial florists_chrysanthemum
flux_unit skrifaði
teens family_parkeriaceae
g17ao skrifaði
drunk genus_tectona
cactus_family skrifaði
korean ipomoea_leptophylla
lexicon skrifaði
porn star dnb802
BANDE skrifaði
spanking DraculaChuo
Síður: 1 2 3
Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.